Forsvarsmönnum fyrirtækja í Kópavogi er boðið til morgunfundar um efnahagshorfur fyrir 2020 og 2022 sem haldinn verður föstudaginn 21 febrúar nk. kl. 8:00 til 9:00 í útibúi bankans á 1. hæð í Norðurturni að Hagasmára 3, 201 Kópavogi,
Á fundinum mun Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka og Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í Greiningu Íslandsbanka fara yfir nýja þjóðhagsspá fyrir árin 2020-2022, svara fyrirspurnum og ræða við gesti.
Boðið verður uppá léttan morgunverð.
Fundurinn er opinn öllum forsvarsmönnum fyrirtækja í Kópavogi.
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku með tölvupósti til markadsstofa@kopavogur.is eða í síma 864 8830.