Rakarastofan Herramenn hefur flutt starfsemi sína í Hamraborg 9 í Kópavogi.
Rakarastofan Herramenn er eitt elsta starfandi fyrirtæki í Kópavogi en það var stofnuð 9. desember árið 1961 af Torfa Guðbjörnssyni hárskera og rakarameistara. Gauti, sonur Torfa, fylgdi í fótspor föður síns og hefur starfað á stofunni frá 1981. Þriðja kynslóðin bættist við árið 2003 þegar sonur Gauta, Andri Týr, byrjaði að nema fagið. Í eitt ár unnu þessar þrjár kynslóðir saman á rakarastofunni en Torfi lést árið 2004. Frá fyrsta degi hefur rakarastofan verið í hjarta Kópavogs.
Rakarastofan Herramenn sérhæfir sig í snyrtingu fyrir herramenn á öllum aldri; hár, skegg, rakstur og hárþvottur. Við hvetjum alla karlmenn í Kópavogi til að kíkja í heimsókn og kynna sé frammúrskarandi þjónsutu þeirra Herramanna.
Nánari upplýsingar um Rakarastofuna Herramenn má finna á heimasíðu fyrirtækisins www.herramenn.is/